Ófrjósemisaðgerð á læðu
Daginn fyrir aðgerð er mikilvægt að læðan sé fastandi frá miðnætti. Hún má drekka vatn en ekki borða. Ef hún er á lyfjum er mikilvægt að hún taki þau, nema dýralæknir hafi tekið annað fram. Við komu fyllir eigandi út innlagnarblað þar sem við fáum helstu upplýsingar um kisuna.
Aðgerðin felst í því að eggjastokkar eru fjarlægðir í kviðarholsaðgerð, gegnum stuttan miðlínuskurð hjá nafla. Saumarnir eru faldir í húðinni og þarf því ekki að fjarlægja þá.
Fyrsta daginn eftir aðgerðina er mikilvægt að halda hita á líkamanum vegna þess að svæfingalyfin geta valdið því að hitastýring líkamans fari úr skorðum. Það getur tekið læðuna einn dag að jafna sig á svæfingunni sjálfri. Mikilvægt er að leyfa henni að hvíla sig í ró og passa að hún borði og drekki eðlilega um kvöldið.
Eftir aðgerðina er læðan meðhöndluð með verkjalyfjum í fjóra til sex daga. Leiðbeiningar um skammtastærð fylgja lyfjunum sjálfum. Mikilvægt er að gefa verkjalyfin. Þau eru bólgueyðandi og flýta fyrir að sárið grói.
Flestar læður eru búnar að ná sér að fullu eftir tvo til þrjá daga og afar sjaldgæft er að aukaverkanir komi fram. Helstu áhættuþættir eftir aðgerð eru blæðingar og sýking. Best er að fylgjast með þessu með því að kíkja daglega á skurðsárið og sjá hvernig sárið lítur út. Nokkrir dropar af blóði geta komið frá sárinu fyrstu dagana en óeðlileg blæðing er ef það seitlar blóð stanslaust úr sárinu. Sýking lýsir sér með því að það kemur vond lykt af sárinu og læðan verður slöpp, lystarlaus og sefur mikið. Það er mikilvægt að læðan sleiki ekki sárið. Ef hún sleikir sárið skaltu koma og fá skerm fyrir hana eða setja hana í galla.
Mikilvægt er að fylgjast með þyngd læðunnar eftir aðgerð en grunnbrennsla katta minnkar um 30% eftir ófrjósemisaðgerð.
Ef eitthvað kemur upp á eftir aðgerðina eða þið hafið einhverjar spurningar er sjálfsagt að hafa samband við okkur í síma 544-4544 eða gegnum tölvupóst dyrin@dyrin.is. Utan opnunartíma eru dýralæknar með neyðarvakt í S: 530-4888. Athugið að dýraspítalar skiptast á að vera með neyðarvaktina.
Gangi ykkur vel og góðan bata.