Gelding á hundi
Daginn fyrir aðgerð er mikilvægt að hundurinn sé fastandi frá miðnætti. Hann má drekka vatn en ekki borða. Ef hundurinn er á lyfjum er mikilvægt að hann taki þau, nema dýralæknir hafi tekið annað fram. Best að er að hundurinn sé búinn að fara í göngutúr til að losa um þvag og hægðir áður en hann mætir. Við komu, fyllir eigandi út innlagnarblað þar sem við fáum helstu upplýsingar um hundinn.
Aðgerðin felst í því að eistun eru fjarlægð úr pungnum í gegnum lítinn skurð við pung. Saumarnir eru faldir í húðinni og þarf því ekki að fjarlægja þá.
Fyrsta daginn eftir aðgerðina er mikilvægt að halda hita á líkamanum vegna þess að svæfingalyfin valda því að hitastýring líkamans fer úr skorðum. Það er eðlilegt að hundurinn sé sljór fyrsta daginn á meðan svæfingin fer almennilega úr honum. Leyfið honum að hvíla sig eins og hann þarf. Fylgist með því að hann borði og drekki. Hundurinn þarf að vera með skerm eða í heilgalla í 5-7 daga, dag og nótt. Það er mikilvægt að hann sleiki ekki sárið því það getur valdið sýkingu.
Eftir aðgerðina er hundurinn meðhöndlaður með verkjalyfjum næstu fimm til sjö daga. Leiðbeiningar um skammtastærð fylgja lyfjunum sjálfum. Mikilvægt er að gefa verkjalyfin. Þau eru bólgueyðandi og flýta fyrir að sárið grói.
Flestir rakkar eru búnir að ná sér að fullu eftir þrjá til fjóra daga og afar sjaldgæft er að aukaverkanir komi fram. Helstu áhættuþættir eftir aðgerð eru blæðingar og sýking. Best er að fylgjast með þessu með því að kíkja daglega á skurðsárið og sjá hvernig sárið lítur út. Nokkrir dropar af blóði geta komið frá sárinu fyrstu dagana en óeðlileg blæðing er ef það seitlar blóð stanslaust úr sárinu. Sýking lýsir sér með því að það kemur vond lykt af sárinu og hundurinn verður slappur, lystarlaus og sefur mikið.
Mikilvægt er að fylgjast með þyngd hundsins eftir aðgerð en grunnbrennsla hundsins minnkar eftir geldingu, sem þýðir að þeir eru líklegri til að lenda í yfirþyngd.
Ef eitthvað kemur upp á eftir aðgerðina eða þið hafið einhverjar spurningar er sjálfsagt að hafa samband við okkur í síma 544-4544 eða gegnum tölvupóst [email protected].. Utan opnunartíma eru dýralæknar með neyðarvakt í S: 530-4888. Athugið að dýraspítalar skiptast á að vera með neyðarvaktina.
Gangi ykkur vel og góðan bata.