Gelding á fress
Daginn fyrir aðgerð er mikilvægt að kötturinn sé fastandi frá miðnætti. Hann má drekka vatn en ekki borða. Ef kötturinn er á lyfjum er mikilvægt að hann taki þau, nema dýralæknir hafi tekið annað fram. Við komu, fyllir eigandi út innlagnarblað þar sem við fáum helstu upplýsingar um köttinn.
Aðgerðin felst í því að estun eru fjarlægð úr pungnum í gegnum lítið gat í húðinni. Það eru engir saumar í skurðinum.
Fyrsta daginn eftir aðgerðina er mikilvægt að halda hita á líkamanum vegna þess að svæfingalyfin valda því að hitastýring líkamans fer úr skorðum. Það er eðlilegt að kötturinn sé sljór fyrsta daginn á meðan svæfingin fer almennilega úr honum. Leyfið honum að hvíla sig eins og hann þarf. Fylgist með því að hann borði og drekki. Fylgist einnig með að hann sleiki ekki sárið því það getur valdið sýkingu. Ef hann sleikir sárið þarf hann að fá skerm eða vera í heilgalla í 5-7 daga.
Eftir aðgerðina er kötturinn meðhöndlaður með verkjalyfjum næstu tvo til fjóra daga. Leiðbeiningar um skammtastærð fylgja lyfjunum sjálfum. Mikilvægt er að gefa verkjalyfin. Þau eru bólgueyðandi og flýta fyrir að sárið grói.
Flestir kettir eru búnir að ná sér að fullu eftir einn til tvo daga og afar sjaldgæft er að aukaverkanir komi fram. Helstu áhættuþættir eftir aðgerð eru blæðingar og sýking. Best er að fylgjast með þessu með því að kíkja daglega á skurðsárið og sjá hvernig sárið lítur út. Nokkrir dropar af blóði geta komið úr sárinu fyrstu dagana en óeðlileg blæðing er ef það seitlar blóð stanslaust úr sárinu. Sýking lýsir sér með því að það kemur vond lykt af sárinu og kötturinn verður slappur, lystarlaus og sefur mikið.
Ef eitthvað kemur upp á eftir aðgerðina eða þið hafið einhverjar spurningar er sjálfsagt að hafa samband við okkur í síma 544-4544 eða gegnum tölvupóst dyrin@dyrin.is. Utan opnunartíma eru dýralæknar með neyðarvakt í S: 530-4888. Athugið að dýraspítalar skiptast á að vera með neyðarvaktina.
Gangi ykkur vel og góðan bata.