Hvolpur á heimilið
Það er ýmislegt sem þarf að huga að þegar kemur að því að bæta við heimilismeðlim.
Hér er ekki ætlunin að fara ítarlega í alla þætti þess, en segja frá því helsta sem gott er að vita.
Til að byrja með er gott fyrir alla að vita að hvolpa má ekki afhenda nýjum eigendum fyrr en við 8 vikna aldur hið fyrsta samkvæmt reglugerðum um dýravernd. Verði fólk uppvíst af broti á þessari reglugerð skal það tilkynnt strax til Matvælastofnnunar, www.mast.is .
Það er nauðsynlegt að athuga hvort að nýji hvolpurinn verði bólusettur, ormahreinsaður og/eða örmerktur af ræktandanum áður en nýjir eigendur taka við. Það er í raun eitthvað sem allir ábyrgir ræktendur gera til að hvolparnir fari með grunnvörn og fasta auðkenningu út í hinn stóra heim sem bíður þeirra.
Hvolpa þarf að bólusetja þrisvar með 3-4 vikna millibili fyrstu mánuðina og svo aftur einu ári eftir síðustu hvolpasprautuna. Eftir það er bólusett á tveggja ára fresti. Bóluefnið sem er notað á íslandi, Recombitec C4 DAP, ver hunda gegn smáveirusótt (Parvo), smitandi lifrarbólgu (Hepatitis Contagiosa Canis), hótelhósta (Kennel cough) og hundapest (Canine Distemper). Hundar þurfa heilsufarsskoðun og ormahreinsun árlega en ormahreinsun er einungis hreinsandi meðferð sem drepur orma í þeim tilfellum sem dýr eru komin með ormana. Ormahreinsun kemur ekki í veg fyrir að hundar smitist af ormum eftir hreinsunina og því er alltaf gott að fylgjast vel með heilsu hundsins alla daga, allt árið.
Það er kostnaðarsamt að eiga hund. Það getur því verið gott að ráðfæra sig við einhvern sem á hund af svipuðu kyni eða af sömu stærð um það hvað má gera ráð fyrir að kostnaðurinn sé á hverju ári. Hvolpar gera sér svo enga grein fyrir því hvort að skórinn sem þeir nöguðu í morgun þegar þú ákvaðst að leggja þig var 999kr inniskór eða 59.999kr gönguskór, vert er að taka fram að þeir geta fundið sér ýmislegt annað til að naga en skó ef ekki er fylgst með þeim og/eða ekki nóg um nagdót á heimilinu. En hvolpar þurfa að naga, þeir naga margt og þeir naga mikið. Þetta er bara partur af því að vera hvolpur. Flestir hundar naga allt sitt líf, en læra með leiðbeiningu frá eiganda hvað má naga og hvað ekki, en það er góð regla að þeir komist alltaf í eitthvað sem þeir mega naga.
Slys og sjúkdómar geta sett stórt strik í reikninginn þegar kemur að dýrunum okkar. Því miður er dýralæknakostnaður ekki niðurgreiddur eins og lækniskostnaður hjá okkur mannfólkinu og því mælum við eindregið með því að fólk sé með dýrin sín slysa- og sjúkdómatryggð. Gæludýratryggingar ættu að fást hjá öllum tryggingafyrirtækjum.
Hvolpur/hundur þarf félagsskap. Það er ekki hægt að ætlast til þess að hvolpur geti verið einn heima meðan eigandinn vinnur fullan vinnudag annarsstaðar.