Saumar eru í húðinni og þarf að taka þá eftir 10-14 daga. Það þarf að panta tíma í saumatöku.
Fyrsta daginn eftir aðgerðina er mikilvægt að halda hita á líkamanum vegna þess að svæfingalyfin valda því að hitastýring líkamans fer úr skorðum. Það er eðlilegt að dýrið sé sljótt fyrsta sólarhringin eftir svæfinguna. Mikilvægt að halda ró fyrstu dagana og leyfa dýrinu að hvíla sig eins og það þarf undir eftirliti. Fylgist með því að dýrið borði og drekki. Flest dýr eru búin að ná sér að fullu eftir tvo til þrjá daga.
Dýrið þarf að vera með skerm eða í heilgalla fram að saumatöku, dag og nótt. Það er mjög mikilvægt að dýrið sleiki ekki sárið því það getur valdið sýkingu. Gott er að kíkja daglega á skurðsárið og hafa auga með ef óeðlileg blæðing er til staðar, vond lykt eða ef dýrið sýnir slappleika eða lystarleysi. Ef einkenni sem þessi koma upp er mikilvægt að hafa samband við dýralækni!
Eftir aðgerðina er dýrið meðhöndlað með verkjalyfjum næstu daga. Leiðbeiningar um skammtastærð fylgja lyfjunum sjálfum. Mikilvægt er að gefa verkjalyfin, þau eru bólgueyðandi og flýta fyrir gróanda.
Ef eitthvað kemur upp á eftir aðgerðina eða þið hafið einhverjar spurningar er sjálfsagt að hafa samband við okkur í síma 544-4544. Utan opnunartíma eru dýralæknar með bakvakt í S: 530-4888. Athugið að dýraspítalar skiptast á að vera með bakvaktina.
Gangi ykkur vel og góðan bata <3