Legbólga (e. Pyometra) er skilgreind sem sýking í legi. Um er að ræða sýkingu sem kemur í kjölfarið á hormónafrávikum í æxlunarfærum. Legbólga er alvarlegt ástand og hún getur verið lífshættuleg.
Þegar tík fer á lóðarí, komast hvítu blóðkornin, sem eru vörn gegn sýkingum, ekki að leginu. Þetta gerist til að sæði komist að æxlunarfærum tíkanna án þess að skemmast. Eftir lóðarí hækka gildi prógesterón hormónsins í allt að 8-10 vikur, sem veldur þykknun á legslímhúðinni. Þessi þykknun er undirbúningur æxlunarfæranna fyrir mögulega meðgöngu, ef tíkin skyldi verða hvolpafull. Þetta gerist hvort sem tíkin verður hvolpafull eða ekki. Þegar tíminn líður og tíkin verður ekki hvolpaful, þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum nokkur lóðarí, heldur þessi þykknun á legslímhúðinni áfram. Þá geta myndast blöðrur og bólgur á legslímhúðinni. Þetta er kjörið umhverfi fyrir bakteríur. Að auki valda þessi hækkuðu gildi prógesterón hormónsins því að vökvi og bakteríur eru ólíklegri til að skolast út. Samsetning allra þessara þátta leiða svo að lokum oft til legbólgu. |
Hvenær á tíðahringnum fá tíkur legbólgu?
Tíkur fá yfirleitt legbólgu 2-8 vikum eftir lóðarí.
Hvaða tíkur fá legbólgu?
Allar tíkur geta fengið legbólgu en yfirleitt fá þær ekki legbólgu fyrr en um miðjan aldur og eftir það. Tíkur sem hafa fengið hormónasprautu (sem kemur í veg fyrir eða stöðvar lóðarí) eru í miklum áhættuhóp.
Tíkur sem eiga sögu um óreglulegt lóðarí og/eða gervióléttu eru sömuleiðis í auknum áhættuhóp. Tíkur sem er búið að taka úr sambandi fá nánast aldrei legbólgu, en ef legið var ekki tekið getur í undantekningartilfellum myndast legbólga.
Hver eru einkenni legbólgu?
Það óhuggnalega við legbólgu er að tíkur geta verið nánast einkennalausar í lengri tíma. Þess vegna er mikilvægt fyrir eigendur að vera vakandi fyrir eftirfarandi einkennum.
Tíkur geta sýnt einhver eða öll eftirfarandi einkenna:
- Drekka mikið/pissa mikið
- Lystarleysi
- Slappleiki og/eða vanlíðan
- Slímug útferð frá ytri kynfærum
- Þaninn kviður
- Uppköst
- Hár hiti
Legbólga getur verið opin eða lokuð. Það fer eftir því hvort leghálsinn sé opinn eða lokaður. Ef hann er opinn, þá lekur sýkt útferð úr leginu. Eigendur sjá oft gröft undir skotti, á hárum eða á bæli tíkarinnar. Ef tík er með lokaða legbólgu, fyllist legið hratt af sýktri útferð. Það er mjög hættulegt og tíkurnar verða fljótt alvarlega veikar. Í verstu tilfellum getur legið rofnað og útferðin lekið í kviðarholið, sem er lífshættulegt ástand. Það er mikilvægt að koma tík með lokaða legbólgu sem fyrst til dýralæknis.
Hvernig er legbólga greind?
Legbólga er yfirleitt greind með sónarskoðun og blóðprufu.
Hvernig er legbólga meðhöndluð?
Þegar tíkur fá legbólgu er eina örugga leiðin að fjarlægja legið úr tíkinni með aðgerð. Stundum er tíkinni gefin sýklalyf í nokkra daga áður en aðgerð er framkvæmd, en það er einungis gert ef tíkin sýnir ekki alvarleg einkenni og sónarskoðun sýnir að legið sé ekki hættulega fullt. Þetta er gert svo tíkin sé í betra ástandi í aðgerðinni.
Til að undirbúa tíkur fyrir aðgerð er þeim gefinn vökvi og sýklalyf í æð. Eftir aðgerð eru þær settar á sýklalyf (og verkja- og bólgueyðandi lyf).
Er legbólga lífshættuleg?
Já. Ef legbólga er ekki meðhöndluð þá getur tíkin verið í lífshættu. Legnámsaðgerðin er einnig hættulegri en venjuleg ófrjósemisaðgerð, þar sem tíkurnar eru veikar þegar aðgerðin er framkvæmd. Aðgerðin má ekki bíða þegar einkenni eru komin langt.
Er hægt að koma í veg fyrir legbólgu?
Já, með því að taka tíkina úr sambandi.
Hér er fyrir neðan er eftirfarandi leiðbeiningar sem fólk fær með sér heim eftir að tíkin fer í aðgerð hjá okkur:
Aðgerðin felst í því að eggjastokkar og leg er tekið gegnum kviðarholsskurð við nafla. Saumarnir þar eru faldir í húðinni og eyðast sjálfir.
Fyrsta daginn eftir aðgerðina er mikilvægt að halda hita á líkamanum vegna þess að svæfingalyfin valda því að hitastýring líkamans fer úr skorðum. Það er eðlilegt að tíkin sé sljó fyrsta sólarhringin eftir svæfinguna. Mikilvægt að halda ró fyrstu dagana og leyfa henni að hvíla sig eins og hún þarf undir eftirliti. Fylgist með því að hún borði og drekki.
Tíkin þarf að vera með skerm eða í heilgalla í 14 daga, dag og nótt. Það er mjög mikilvægt að hún sleiki ekki sárið því það getur valdið sýkingu. Gott er að kíkja daglega á skurðsárið og hafa auga með ef óeðlileg blæðing er til staðar, vond lykt eða ef tíkin sýnir slappleika eða lystarleysi. Ef einkenni sem þessi koma upp er mikilvægt að hafa samband við dýralækni!
Eftir aðgerðina er tíkin meðhöndluð með verkjalyfjum næstu daga. Leiðbeiningar um skammtastærð fylgja lyfjunum sjálfum. Mikilvægt er að gefa verkjalyfin. Þau eru bólgueyðandi og flýta fyrir gróanda.
Fyrstu dagana er gott að fara aðeins í stutta göngutúra í taum og eftir 14 daga má fara að lengja göngutúrana smám saman.
Mikilvægt er að fylgjast með þyngd tíkarinnar eftir aðgerð þar sem grunnbrennslan minnkar eftir ófrjósemisaðgerð, sem þýðir að þær eru líklegri til að lenda í yfirþyngd.
Ef eitthvað kemur upp á eftir aðgerðina eða þið hafið einhverjar spurningar er sjálfsagt að hafa samband við okkur í síma 544-4544. Utan opnunartíma eru dýralæknar með bakvakt í S: 530-4888. Athugið að dýraspítalar skiptast á að vera með bakvaktina.
Gangi ykkur vel og góðan bata <3