COVID-19 Reglur
Vegna COVID-19 óskum við eftir að einstaklingar fylgi settum reglum til að komast hjá óþarfa snertingum og nánd til þess að vernda alla einstaklinga á komandi tímum.
• Viðskiptavinir eru beðnir um að spritta hendur sínar þegar þeir koma inn á spítalann og þegar þeir fara þaðan aftur.
• Við hvetjum viðskiptavini að bíða fyrir utan/út í bíl ef 10 manns eru inni í afgreiðslu til þess að minnka smithættu á milli dýraeiganda.
• Komdu ein(n) með dýrið. Ef þú hefur einhver flensueinkenni eða ert í sóttkví, endilega leitaðu aðstoð annarra til þess að koma með dýrið.
• Viðskiptavinir eru beðnir um að skrá sig inn með venjulegum hætti, en með 2ja metra fjarlægð. Eftir skráningu verður þeim vísað inn á skoðunarherbergi ef það er laust eða beðnir um að bíða á biðstofu.
• Biðstofan bíður upp á góða fjarlægð á milli einstaklinga en meta þarf hvert tilfelli fyrir sig varðandi notkun hennar.
Með þessum hætti vonumst við til þess að geta veitt viðskiptavinum óskerta þjónustu og vonumst til að vírusinn gangi fljótt yfir ☹
Takk fyrir
Dýralæknamiðstöðin Grafarholti